Aðalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Prófíll

Nýjast á HumorPix

Funny Images, Before/After Elections Funny Images, When helmets make no sense Funny Images, I actually like some of them but I found this funny! Funny Images, Damn right Funny Images, When you see it… Funny Images, People who think outside the patterns are special!

Innskráningar kubbur

Flokkar

Teljari

Leikur dagsins

Gagnasafn

Ég er flutt!Hulda Sigurðardóttir

Bloggið er komið annað og hægt er að finna það hér http://englastelpa.blog.is/blog/englastelpa/

Ætlar þetta engan endi að takaHulda Sigurðardóttir

Helena er aftur komin með háan hitaeða 40 stiga hita og enn og aftur komin með ljótan hósta.
Ég ætla að láta kíkja á hana á morgun og látarannsaka hana almenilega og á er ég a'tala um að ég ætla að heimtaað ónæmiskerfið verði rannsakað aftur. Ég bara get ekki séð það að það sé komið í lag eins og Ásgeir var að tala um. Ég meina aðbarnið er búið að vera lasið í 6 vikur í allt.

En að öðru á á Alexander afmæli í dag og hélumvið upp á það í Kátakoti sem að var frábært vegna þess að það voru um 30 krakkar saman komin og þvílík læti en þetta var afmælið hans Andra líka þar sem að hann verður 7 ára á mogrun. Tíminn líður sko hratt. Mér finnst eins og ég hafi fengið Alexander´í fangið í gær og núna er hann orðinn 12 ára. Það er bara ár í að 'hann verði orðinn táningur

En ég er orðin voðalega þreytt eftir langan dag o mikil læti svo að ég læt þessa stuttu færslu duga.

Rosalega góður dagur í dagHulda Sigurðardóttir

Í morgun fór ég með hana Helenu á leikskólann og gekk það alveg ofboðslega vel og var hún mjög ánægð með að byrja aftur eftir veikindin.
Ég fór svo á æfingu og loksins er ég komin með prógram sem virkar fyrir mig miða við beinbrot og MS kast og ég tók ekkert smá á en mikið líður mér vel.  Kastið er reyndar ekkert mikið en nóg til þess að ég er sárkvalin á kvöldin og pirringurinn í báðum fótum og höndum er að drepa mig en ég ætla ekkert að vera að láta það stoppa mig. Ég ætla mér að vera með flottan vöxt þegar ég gifti mig. Eins og staðan er núna þarf ég að láta víkka brúðarkjólinn en ég vil frekar að þetta muni snúast við og að ég þurfi að láta þrengja hann. Ég er að reyna að breyta mataræðinu hjá mér og ætlar Baldur að gera það líka þannig að ég fæ smá hjálp og stuðning.

En egar ég kom að sækja Helenu á leikskólann sá ég að það var verið að taka upp viðtal við nýja leikskóllastjórann. Ég spyr á hana Rannveigu hvað málið væri og þá fæ ég að vita það að hún er fyrsti erlendi leikskólastjórinn á landinu. Hún virkaði mjög almenileg á mig og vonandi taka krakkarnir henni vel en hún er að koma af stað breyttri stefnu á leikskólann sem felst í meiri hreifingu hjá þeim og svona. Það verður gaman að sjá  hvernig þetta muni lukkast hjá henni.Ég alla vega held að meiri hreifing sé bara góð sérstaklega fyrir hana Helenu. En ég ætla núna að fara að reyna að gera eitthvað hérna eins og til dæmis fara að baka fyrir afmælisveisluna á morgun sem að ég ætla að fara aað halda fyrir strákana.

Hann er æði æði æði æði lalalaHulda Sigurðardóttir

Já hann Baldur minn er mesta yndi sem til er. Í dag þegar ég kíkti á hann upp í vinnu færði hann mér 1 stk fartölvu :oD
Ég er reyndar búin að vera eins og lítill krakki að suða um fartölvu en ég átti ekki von á því að þetta yrði látið eftir mér. Sérstaklega þar sem að ég fékk fjórhjól fyrir jólin og nýkomin á fínann bíl. En alla vega þá er ég alveg í skýunum og elska fartölvuna mína. Ég er að spáí að finna á hana nafn bara svona upp á flippið en ég veit það samt ekki maður má nú ekki alveg tapa sér hahaha.

En við erum búin að fá myndir af Baldri frá því að hann var lítil( hóst minni )l stubbur;o) og nú er bara að fara að velja réttu myndirnar til að setja á boskortin.  Hann var nú alveg voða mikil dúlla sem barn og eru þetta flottar myndir og vonandi getur pabbi skannað þær inn í tölvuna og stækkað eina fyrir okkur.
en Georg og Heyjó eru hjá okkur þessa helgina og verður það bara gaman að hafa þau í heimsókn.

Þá er stressið byrjað fyrir brúðkaupiðHulda Sigurðardóttir

Við byrjuðum í gær að ræða málin um veitingar og skreytingar og þess háttar. Ég hringdi í dag í eina veisluþjónustu og bað um tilboð og mér fannst það ekki nógu gott þannig að ég er búin að taka það alvedg út af blaðinu. Svo talaði ég við Rebekku vinkonu okkar og er hún tilbúin að skreyta salinn og hjálpa okkur með það helsta sem að við ætlum að þyggja með þökkum. Ég áttaði mig á því fyrst í dag hvað það er mikið sem að við eigum eftir að gera og það sem að við verðum að gera fyrir veisluna. Þó svo að við ætlum ekki að hafa þetta stórt þá er þetta samt sem áður hellingur sem að við þurfum að gera. Ég þarf að redda dúkum, vösum, serféttum. blómum og svo þarf ég að ath hvort að það séu nóg af glösum og diskum, hnífapörum og allt það helsta. Það koma um 70 manns í veisluna og allir sem að ég er búin að tala við ætla að koma. Svo þarf ég eða við að redda öllu áfengi, gosi, kaffi og þess háttar þó svo að ég held að það sé svo sem nógur tími fyrir það ennþá.

Ég hlakka jafn mikið til og ég kvíði öllu stressinu í kringum þetta en þetta reddast allt það er ég alveg viss um. Svo þarf Baldur að fara að redda sér fötum og við þurfum að fá föt á alla krakkana en vonandi förum við út þar sem að við getum verslað þau þar.

Svo í næstu viku eiga strákarnir afmæli og verða þeir 12 ára og 7 ára. Ég er búin að pannta Kátakot undir afmælisveisluna þannig að ég þarf ekki að hafa fyrir þessu hér en þeir ætla báðir að bjóða öllum bekknum hjá sér þannig að þetta vberður alveg hellingur af krökkum. Ég er að spá í að reyna að finna einhverja leiki fyrir þau til asð fara í og svona til að gera þetta gaman fyrir þau.

Ég vona bara að Helena verði orðin hress svo að ég geti þetta en hún er voða lasin. Hún er búin að vera gubbandi út af hóstanum í 3 daga og í dag vaknaði hún kl. 12 á hádegi og sofnaði aftur um 14 í dag og svaf í 3 klst. Núna er hún lögst aftur inn í rúm og er að sofna. Ég ætla að reyna ð ná í hann Ásgeir á morgun og láta hann vita hvernig hún er. Ég vona samt að ég þurfi ekki að fara með hana aftur upp á spítala hennar vegna veghna þess að henni er orðið mein illa við það að láta alltaf stinga sig og fykta í sér skiljanlega.
Ég kost í 30 mín á æfingu í gær en svo þurfti ég að fara með báða strákana til tannlæknis en Baldur var heima á meðan. Ég verð bara að fara að komast á æfingu þar sem að ég keypti bara einn mánuð og ég vil geta notað það. Svo er aldrei að vita nema að ég getu verslaða annað kort ef að vel gengur þennan mánuð. En eitt er ég alveg 100% viss um og ákveðin og það er að ég ætla ekki að þurfa að láta víkka kjólinn heldur vil ég frekar láta þrengja hann þegar ég fer með hann til að láta stytta hann. Ég hlakka ekkert smá til að fara í hann og labba inn kirkju gólfið. Ég verð lang flottasta brúður sem sést hefur ;o) Hehehe pínu grobb. En vá ég ætla að láta þessa ritgerð duga og halda áfra að spila tölvuleikinn minn ;o)

Til hamingju með afmælið elsku Kristofer minnHulda Sigurðardóttir

Já hann Kristó litli frændi minn á afmæli í dag og óska ég honum innilega til hamingju með það. RISA knús á þig elsku frændi og Hendrik til hamingju með strákinn.

En Helena er aftur orðin lasin og endaði inni á barnaspítla á fimmtudaginn eina ferðina enn. Sem betur fer er hún bara með þessa venjulegu flensu sem er að hrjá alla landsmenn þessa dagana þannig að hún er ekki komin með lungnabólgu aftur  og ekki heldur bronkitis. Hún var samt send í myndatöku til öryggis og blóðprufu og allskonar rannsóknir en Ásgeir kom svo að ræða við okkur og sagði okkur að ónæmiskerfið veri bara svona lengi að læra að vinna saman og þessvegna er hún svona oft og mikið lasin. En hún er farin að hressast heilmikið sem betur fer þannig að vonandi getur hún farið á leikskólann á miðvikudaginn.

Ég er byrjuð að æfa hjá World Class og það þykir mér alveg rosalega gaman. Ég byrjaði reyndar að æfa í Mosó en líkaði það frekar illa svo að ég er farin að æfa í Grafarvoginum í staðin og líkar það mjög vel.
Svo er ég loksins komin á nýjann bíl, vúhúúúúú. Já ég fékk 2005 árgerðina af Ford Focus Trend station steingráan og finnst mér bara mjög gott að keyra hann. Hann er sjálfskiptur sem að ég setti sem algjört skilyrðiGlottandi Hann er rúgóður og þægilegur í alla staði með hita í sætum og allt.
Ég er komin frá truslu upp í alvöru bíl.

En enn og aftur til hamingju Kristó með afmælið og þín bíður pakki sem að þú færð þegar þú kemur í heimsókn um páskana.

AfmælisdagurinnHulda Sigurðardóttir

Í dag er ég (18) 32 ára og er dagurinn bara búin að vera alveg frábær. Ég bauð mömmu, pabba, ömmu og Brynjari og Öldu í kaffi og einnig Huldu vinkonu minni en hún kemur á morgun. Mamma og pabbi gáfu mér Davíð stjörnuna en hún hefur mjög þýðingamikið gildi hjá mér þar sem að fjölskylda mín úr móðurætt hefur rætur sínar að rekja til gyðingatrúar. Frá tengdó fékk ég mjög fallega hálsfedsti og eyrnalokka í stíl og frá ömmu minni fékk ég fallega rós og smá pening. Ég verð að viðurkenna það að ég átti nú ekki von á því að fá nokkuð þar sem að þetta er nú ekki stór afmæli en það var ekki leiðinlegt að fá þetta. Frá Brynjari og Öldu fékk ég fallegt lítið bóm í vatni. Ég gaf svo Höllu Margréti og Hörpu Lind loksins afmælisgjafirnar þeirra sem gladdi þær mikið og það þótti mér sko ekki leiðilegt.
Helena og Halla Margrét léku sér svo voða góðar saman í búninga/ prinsessu leik en hún Helena fann pakkan sem að við ætluðum að gefa henni í afmælisgjöf og opnaði hann án þes að ég tæki eftir. Það er eins gott að maður  fari að setja hlutina hærra upp.

En þar sem að ég er hálf uppgefin eftir langan en skemmtilegan dag þá ætla ég að láta þetta gott heita og ég skrifa meira eins fljótt og ég nenni.

Það styttist í þettaHulda Sigurðardóttir

Já það styttist í næsta afmælisdag eða bara 5 dagar í hann. Já ég er að verða 16 ára í anda en rétta talan er 32 ára sem er bara gaman. Já mér finnst gaman að eldast og ég fagna hverjum einasta afmælisdegi með bros á vör. Ég er búin að bjóða mömmu,pabba,brósa og konunni hans í kaffi á sunnudagin en þau bara koma ef að þau vilja. Ég ætla bara að hafa opið hús fyrir þá sem að vilja fagna þessum degi með mér. Ég ætla að bjóða Huldu vinkonu minni líka yfir í kaffi og svona.
En svo er það hún Helena mín litla krúttið mitt sem er komin í sér herbergi með honum Andra en við versluðum koju handa þeim um síðustu helgi. Hún var voða dugleg að sofa í sínu herbergi í nótt enda svaf ég eins og steinn í fyrsta skipti í marga mánuði.
Ég var orðin svo góð í öxlinni og var arin að getað sett í mig tagl en svo fyrir svona 1 - 2 dögum kom eitthvað bakslag í hana og núna er ég alveg að drept í öxlinni. Ég þoli ekki að vera svona og ég er gjörsamlega farin að klepra á því að vera svona mikið heima bara af því að það er svo sárt að keyra. En þetta hlítur samt að fara að lagast ég bara trúi ekki öðru.

En meira af Helenu en hún er farin að vera voða dugleg að borða loksins. Hún borðai tvo skammta af hakki og spakettí í gær á leikskólanum og svo borði hún fisk og vel af honum í dag. Æji  ég vona bara að þetta sé allt að koma hjá henni. Þetta er búið að vera nsi erfiðar vikur en eru vonandi að skána núna. Helena fékk frekar slæma lungnabólgu og sjæman asrma út frá henni og hún er búin að vera á stera pústi í að verða 3 vikur. En hún er nánast hætt að hóst svo að þetta er vonandi allt að koma hjá henni greyinu. En svo er bara farið að kólna svo svakalega að það er kannski ekkert skrítið að allir eru veikir eða að verða veikir ég bara vona að ég sleppi. Það er spáð 18 - 20 stiga frosti um helgina uppi á hálendinu brrrrr kalt bara við tilhugsunina.
Ég verð alla vega að passa vel upp á Helenu sérstaklega af því að hún er svo viðkvæm og hún er svo líklega til að fá frostbit. Ég verð bara að vera dugleg að bera á hana.

En ég ætla að láta þessa runu mína duga í bili og hada áfram að gera eldhúsið klárt fyrir myndatöku.

Gleðilegt árHulda Sigurðardóttir

Margt er búið að ganga  á síðan ég skrifaði síðast. Jólin eru búin og áramótin en jólin voru mjög fín og afslöppuð þangað til annan í jólum. Við akváðum þá að fara upp í Bláfjöll með alla fjölskylduna nema Helnu að leika okkur á fjórhjólinu og sleðunum. Neme hvað að Baldur ákveður að fara á sleðanum aðeins upp fjallið og á meðan lék ég mér á hjólinu. Þetta var rosalega gaman og mikið fjör en ég kann ekki að keyra hægt og ég náði að velta hjólinu og viðbeinsbrotna. Það var hringt á sjúkrabíl og læti og þegarég var búin að liggja hreifingalaus í u.þ.b. 30 mín kemuir sjúkrabíllinn og lögreglan og svaka læti. Ég samt man bara eftir sjúkrabílnum en ég frétti svo þegar ég var komin upp á spítala að lögreglan hafi komið lika og tekið skýrslu af vinkonu minni sem að var með okkur.
Ég er svo komin upp a slysó klst. eftir að ég velti og fékk þá að vita að ég er viðbeisbrotin. Áááiiii hvað það er ógeðslega vont en ég er samt með aðeins minni verki núna heldur en ég var með fyrst.

Helena er voða góð við mömmu sína og segir alltaf þegar hún klannski rekst í mig " fyrigefðu mama " voða sæt.
En svo koma smá góða fréttir líka.
Við erum búin að ákveða daginn fyrir brúðkaupið og hann er 19 júlí nk. í Grafarvogskirkju og ætlar hann séra Vigfús Þór Árnason að gefa okkur saman.
En svo eftir að kirkjan var pöntuð fengum við að vita að líklegast eru eða verða tvö ættamót um þessa helgi. En þar sem að Vigfús er  er að fara í sumarfrí strax eftir brúðkaupið þá eru ekki mikið um aðra daga að ræða nema þá bara seinna sem ikemur eiginlega ekki til greina fyrir mig.
En þetta verður æðislegt brúðkaup og verður örugglega mjög gaman.

Verður maður ekki að skrifa eitthvað svo að þessu bloggi mínu verði ekki lokaðHulda Sigurðardóttir

En það er svo mikið búið að ganga á síðan ég skrifaði síðast að ég veit ekki hvar skal byrja.

Helena er búin að vera lasin í heilar 4 vikur og svo kom að því loksins þegar hún komst á leikskólann að hún þurfti að vera heima 1 dag vegna manneklu. En hún ætlar að standa sig vel með það að verða ekki aftur veik fyrir jól 7,9,13. Hún er líka farin að fá í skóinn sem aðhenni finnst rosalega gaman enda glaðvaknar hún alltaf þegar ég sýni henni jólasokkinn. Andri vaknar yfirleitt kl. 6-7 á morgnana til að ath hvort og þá hvað hann fékk í skóinn. Já spenningurinn er mikill hjá þeim sem er bara gaman. Reyndar er jólaskapið hjá mér týnt eða alla vega þá er ég ekki í neinu jólaskapi núna sama hvað ég hlusta mikið á jólalög. Jólaskapið er bara horfið. Það er kannski ekki skrítið miðavið hversu erfitt þetta ár er búið að vera en ég verð bara að vera dugleg að horfa fram á vegin og hugsa jákvætt.

Ég er að bíða eftir að fá svar frá lækninum mínum í sambandi við hvort að ég sé í fyrsta hollinu til að fá nýja lyfið. Ég vona það vegna þess að ég er búin að bíða í meira en 4 ár eftir að komast á eitthvað lyf sem að ég þoli og ég þoli ekkert af þesssum lyfjum sem í boði eru þannig að ég verð að binda vonina á þetta nýja lyf. Jú jú ég er búin að vera nokkuð góð síðan Helena fæddist en ég finn að ég verð máttfarari og máttfarari mjeð hverju deginum núna þannig ég er að verða pínu hrædd. En ég verð bara að reyna að taka því rólega og vera ekki að neinu óþarfa stressi.

En ég ætla að láta þetta duga þar sem að ég verð að halda ´fram að klára að pakka inn gjöfum og svona af því að ég er að fara að keyra þær út á morgun.
Síða 1 af 23

Undirsíðukubbur

Nýjast á B2.is

RSS veitur

Leit

Undirsíðukubbur